Party veislu fjör, svaka stuð
Leikir
20.04.2006 23:20:29 / laganemar

PARTÝ PARTÝ PARTÝ PARTÝ PARTÝ PARTÝ PARTÝ PARTÝ!!!!!

Próflokadjammið verður á morgun á PRAVDA og hefst stundvíslega klukkan 21:00 ef þið viljið fá frían bjór.  Hins vegar eru allir laganemar á 2. ári velkomnir í fyrirpartý á BRÆÐRABORGARSTÍG 32.  Þar mun Haddi halda uppi fjörinu með viltum dansi eins og honum einum er lagið.  Ekki þarf að tilkynna komu sína og þetta er í göngufæri við PRAVDA(sirka 7 mínútur á hælum).

ALLIR AÐ MÆTA OG ENGAR AFSAKANIR TEKNAR GILDAR.

Sjáumst hress og kát annað kvöld á BBS 32:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 14:39:24 / laganemar

Fordrykkurinn ógurlegi

Ágætu laganemar.

Nú er farið að styttast all verulega í árshátíð Lögréttu og ekki laust við að sumir séu komnir með fiðring í tærnar. Miðað við það sem maður er að heyra þá stefnir allt í hörkumætingu af okkar ári og skemmir það ekki fyrir stemningunni.

Til að auka enn frekar á stemninguna hafa nokkrir einstaklingar innan deildarinnar tekið höndum saman og planað smá "dagskrá".......

Dagurinn verður tekinn snemma, þ.e. fimmtudagurinn. Stefnan er sett á að hittast í sundi og halda svo til Dúnu (Guðrún Svava) í smá brunch.

Laugardalslaug kl. 11:30 og svo haldið þaðan til Dúnu, Digranesvegur 58, beint á móti MK. Þar er planið að snæða saman og koma sér í smá gír fyrir kvöldið. Athugið að þó fólk mæti ekki í sund þá er það hjartanlega velkomið til Dúnu! Stefnan er sett á að vera þar ekki seinna en kl 13:00.

Það verður svo skammt stórra högga á milli því þegar líða fer að kvöldi er planið að halda smá fordrykk í Vallargerði 10, Kópavogi (flestir eflaust komið þangað áður). Húsið þar opnar 17:30 fyrir æsta árshátíðarfara og stefnan sett á að skunda á Sögu ekki seinna en 19:30 (athugið að enginn þarf að vera feiminn við að mæta á uppgefnum tíma, ef ég vildi ekki fá fólk fyrr en kl 18:30 þá myndi ég bara segja það;))

Nú þurfið þið hins vegar að STAÐFESTA tvennt í commentunum:

  1. Ætlar þú að mæta í brunch? (200kr á kjaft og allt verður klárt)
  2. Ætlar þú að mæta í fordrykkinn? (kostar ekki neitt enda verður ekkert gefið, múahahahaha)
  3. Ætlar þú ekki að dansa af þér skóna?

Ef það eru einhverjar spurningar þá ekki hika við að bjalla, 899-1229 (Siggi Freyr).


» 43 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 19:30:40 / laganemar

Brussel

Halló allir og takk fyrir snilldarferð...........

Það vita allir hvað þetta  var mikil snilld svo það verður ekki eytt miklu púðri í ferðasögu;)

En myndir viljum við sjá.............

Setjið slóðina af ykkar myndum í comment hér og við græjum það inn á síðuna.


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.09.2005 18:43:07 / laganemar

Til hamingju Daníel.........

........og allt annað árið (nema þeir sem skrópuðu).

Við rúlluðum upp Lögréttuleikunum á Þingvöllum og skutum 1. árs nemum, 3.árs nemum og meistarnámsnemum ref fyrir rass.

Til að bæta gráu ofan á svart þá rúllaði Daníel upp keppninni um lögsögumann ársins.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2005 15:17:48 / laganemar

Þingvellir

Jæja kæru laganemar,

á föstudaginn verður Þingvallaferðin margrómaða. Lagt af stað frá HR kl 13:00 og áætluð heimkoma um 18:00.

Það er allveg á hreinu að enginn laganemi getur kallað sig laganema nema hafa farið í þessa ferð og sogið í sig fróðleikinn sem Sigurður Líndal lætur út úr sér. Fróðleiknum er svo hægt að skola ennþá betur niður með ísköldum bjór, sem verður veittur af Lögréttu.

Að loknum fróðleiknum verða svo heljarinnar leikar þar sem laganemar berjast um hina ýmsu titla. Við laganemar á öðru ári eigum þar titil að verja eftir frækilega frammistöðu Daníels og Björns Þorláks í fyrra ;)

Þegar heim verður komið verður svo gleðinni haldið áfram ásamt öðrum nemum HR.

Ooooooooooooooog skrá sig svo!


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2005 15:51:02 / laganemar

Myndir

Flestir hafa eflaust séð myndirnar á stúdentafélagsvefnum, sem teknar voru á laganemadjamminu eftir FORUM-ferðina og nýnemamixið.........

Færri vita hins vegar að það var bara helmingurinn.......af óviðráðanlegum ástæðum komust þær ekki allar inn þar en hey, hér er restin......íha!!!!!

http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=8GcMm7di3YiU&notag=1

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.09.2005 20:51:48 / laganemar

ýsa var það heillin.........

DP-lögmenn er staðurinn á morgun, föstudag......................

Tryllt Vísó kl 17:00 (mæting 16:30) og svo brjálað partý á Hressó á eftir þar sem allar deildir skólans koma saman. Já, það er vísó hjá öllum deildum og Hressó verður málið.................veigarnar þar á kostnaðarverði.

Hvað viljiði meira????

Ef þessar hressu píur mæta, þá er ekki að spyrja að leikslokum...............


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2005 14:23:06 / laganemar

timinn er svo lengi ad lida

vid verdum ad bida til 23. sept..................


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 13:48:41 / laganemar

tilmæli

Mæli eindregið með því að laganemar bíði spenntir eftir 16. september og jafnvel taki hann frá.............uss, ekki segja samt neinum!

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.09.2005 17:28:46 / laganemar

HALLÓ, HALLÓ!!!!!!!!

Jæja gott fólk, tími til kominn að þetta kvikindi vakni til lífsins!!!!!!

Þessi síða virkaði afar vel í fyrra sem sameiginlegur vettvangur fyrir tilkynningar og annað gleðiefni þegar til stóð að sletta úr klaufunum að hætti laganema. Nú er mál að rífa sig upp aftur.

Vísó í FORUM-lögmenn í kvöld fyrir 2., 3. og 4. ár og nýnemarnir fara í óvissusprell, svo sameinast allir í mögnuðu partýi í Kópavoginum................er einhver að biðja um meira?????

Tekur smá tíma að koma þessari síðu í gagnið aftur en ef einhver hefur góða hugmynd um hvernig við getum nýtt hana betur fyrir ALLA laganema HR, þá endilega senda mail á aniel04@ru.is">daniel04@ru.is eða igurdurfs04@ru.is">sigurdurfs04@ru.is . Svo ef einhver hefur áhuga á að komast hér inn, þá ætti það ekki að vera flókið að kippa því í liðinn.

Reynum að henda myndum hérna inn eða linkum á myndir svo endilega láta vita með því að commenta eða maila.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2005 22:08:09 / laganemar

Vorferð nk.föstudag

Það verður massa vorferð næsta föstudag, þ.e. 20. maí.

Við erum að tala um snilldarstað á höfuðborgarsvæðinu, grill og slatti af bjór.

Takið föstudaginn frá og klárið skólaárið með stæl!


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.04.2005 20:08:18 / laganemar

Próflokadjamm

Svo það fari ekki framhjá neinum, þá verður massíft próflokadjamm á vegum lagadeildar.

Snilldar salur, snilldar DJ og snilldar verð á áfengi = snilldar stemmning!

Mætum öll og tökum á því saman.............

p.s. ef einhver hefur áhuga á að gera e-ð fyrir partýið, út að borða eða halda fyrirpartý, þá endilega bjalla í okkur strákana eða commenta


» 113 hafa sagt sína skoðun

16.03.2005 21:48:23 / laganemar

Myndirmyndirmyndirmyndirmyndir.............

Sælt veri fólkið............fullt að gerast og búið að gerast en nenni ekki að segja frá því.

Árshátíðin var á föstudaginn og var hún snilld, Palli fór á kostum og legg ég til að hann verði bókaður ekki seinna en strax á lögréttu hátíðina að ári.

En annars þá er komið e-ð af myndum ef þeir sem ekki fóru vilja fá bömmer og kannski líka þeir sem fóru............?

Kalla skellti inn nokkrum kvikyndum á síðuna sína.............ef þið vitið um fleiri, láta vita. Myndir af Kristjáni Vald vel þegnar:)

Seinna


» 110 hafa sagt sína skoðun

21.02.2005 09:17:20 / laganemar

Myndir

Jæja gott fólk, góð helgi að baki. Árshátið Lögréttu og svo vísó á fös, hvorutveggja heppnaðist víst afar vel!

Fyrir áhugasama þá er Guðrún Ösp búin að smella inn myndum á síðuna sína, linkur á síðuna hennar er hér vinstra megin........tjékk it át.

Ef fleiri tóku myndir sem þeir vilja deila með múgnum, þá endilega látiði vita hérna í commentunum,

takk og bless, ekkert stress (nema þó fyrir samnó prófið, það er leyfilegt)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2005 14:00:28 / laganemar

Hvað er framundan?

Það vita allir hvað er framundan, en færri vita hvað er liðið.

Já gott fólk, þið sem misstuð af ferðinni norður ættuð að taka frá þennan tíma að ári því ferðin var ekkert nema snilld!!!!!!! Snilld segi ég. Þýðir ekkert að gráta sig í svefn núna, þið völduð að missa af þessu:)

Annars eru tvær árshátíðir framundan, Visku og Lögréttu. Endilega segið ykkar álit í könnuninni.

Ef mæting laganema á Lögréttu árshátíðina verður eins góð og í próflokadjammið, þá rifna þök af húsum..........rifna allavega blöð eða e-ð.

Heiðar hefur boðið í kokteil fyrir árshátíðina og fær hann mikið hrós fyrir það!

Allveg spurning um að fólk skoði möguleika á þessu fyrir Visku árshátíðina líka.

Vonandi mæta allir á þessa viðburði og skemmta sér vel, sýnum liðinu að við gerum fleira okkur til afþreyingar en að lesa dóma og tuða yfir verðinu í Bauninni;)


» 105 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3